Hvítsokkar með meiru!

komdu ef þú þorir;)

17.12.2007 22:41:19 / hafdis

Einhver...bara einhver?

Já hér er sko líf og fjör og læti greinilega:) Fékk mail frá siggu um daginn um það hvað væri að frétta ...ég er bara uppí haus af vinnu þessa dagana ..er orðin forstöðukona sem er ekkert grín greinilega! En ég er ekki búin að missa geðheilsuna...ég rígheld í hana! Vonandi hafið þið það gott þarna um allan heim kæru vinir ....:)

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 11:49:44 / hafdis

Akureyri here I come

Jámms....vildi bara láta vita að ég er að koma á akureyri um helgina, rekst vonandi á eitthvað skemmtilegt lið;) ég semsagt fer á tjútt í kvöld, svo í sjallann á morgun og eitthvað...

Veit samt að það eru ekkert margir að skoða þessa síðu, en sakar ekki að nefna þetta:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.07.2007 12:21:52 / sigga

Jæja fólk mitt gott

Henti inn nokkrum tenglum hérna, endilega verið dugleg við slíkt hið sama. Varðandi myndefni er ég til í að deila því í læstu myndaalbúmi ef einhver vill það. Svo langar mig líka alveg rosalega til að biðja fólk að henda inn einni færslu um hvað það hefur verið að gera og er að gera í dag...8)

 

því ríð ég á vaðið:

hef sl. ár verið að vinna sem ráðgjafi á Fjölskyldudeild Akureyrarbæjar (í almennri félagsráðgjöf og fjárhagsaðstoð, tók viðbótarfög í HA 2006-2007. Er að flytja frá Akureyri eftir c.a. 20 daga, er á leið í mastersnám í HÍ í haust í lýðheilsuvísindum. Fyrir áhugasama:D: http://www.laeknadeild.hi.is/page/publichealth.

Bestu kveðjur á ballið, Sigga


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 23:45:10 / joa

Húrra fyrir Hafdísi

Komið sæl og blessuð mín kæru systkin

Ég held að það sé sýnilega greinilegt og ekkert vafamál að við verðum að hrópa húrra fyrir Hafdísi okkar. Og við gerum það hér með: HÚRRA,HÚRRA, HÚRRA og svo HÚRRA. Hér getum við komið ýmsu á framfæri, s.s. fyrirhuguðum hitting o.s.frv. Hugsanlega gætu nýbakaðir foreldrar líka sagt okkur sögur af börnum sínum. Ja eða eiginlega bara hvað sem er.

Af mér er allt gott að frétta, er búin að finna fimm skóla á Bretlandi, hver öðrum spennandi. Get varla beðið eftir að þetta verði að veruleika 8)

Segi og skrifa það soma kvo alle sammen

Jóa


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 16:33:18 / hafdis

Loksins loksins

Ég ákvað að setja upp þessa síðu handa okkur svo við getum reynt að halda einhverju sambandi þó svo að allir séu fluttir útum allar tryssur!!!:) ég nennti ekki að eyða meiri tíma í að finna mynd í hausinn á síðunni þar sem hún þarf að vera í ákveðinni stærð....einhver sniðugur getur lagað þetta síðarmeir;) en já ég hef semsagt gert sona síðu áður fyrir aðra vinahópa...stundum gengur að halda sambandi en stundum bara gefst fólk upp og síðan ekki hreyfð í fleiri fleiri mánuði....það skal ekki gerast hér!!!! ég veit hversu mikla tjáningaþörf þið hafið þannig að ég hef engar áhyggjur af því að síðan verði ekki notuð.....;) skemmtið ykkur vel ...ég sendi á ykkur póst með notendanafni og lykilorði....svo bara ...write away.....hehe;)

» 5 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill
Sona margir dagar síðan
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 734541 dögum